SEX FRÁBÆRIR FYRIR MAN. UTD
Louis van Gaal, stjóri Man. Utd, mætir líklega til leiks á leikmannamarkaðinn eftir áramót með troðfullt veskið. Á óskalistanum eru varnarmenn. Fréttablaðið skoðar hvaða leikmenn enska liðið mun líklegast bjóða ríflega í. Varnarleikur Man. Utd hefur verið mikið í sviðsljósinu það sem af er leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Of margir varnarmanna liðsins þykja ekki nógu góðir og tíð meiðsli varnarmannanna hafa ekki létt liðinu lífið. Kaup á varnarmönnum eru yfirvofandi á Old Trafford og hafa ýmsir varnarmenn verið nefndir til sögunnar. Það gæti reynst þrautin þyngri að ná í eitthvað af þessum mönnum en allt ku nú vera falt fyrir rétta upphæð.
Henry Birgir Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Sport
ÞETTA LÍST MÉR VEL Á
Read latest Fréttablaðið online.
Online newspapers
at PressDisplay.